Upphaflega spurningin var svona:
Ef ég er með kaffibolla og risastóra kaffikönnu, helli heitu kaffi í bollann, tæmi hann strax og helli aftur heitu kaffi í hann, hitna ytri mörk rúmsins sem kaffið tekur (þar sem bollinn er heitur þegar kaffið lendir á honum), og ef svo er, væri hægt að bræða bollann með því að ...
Eldur er eins konar fyrirbæri eða ástand sem kviknar þegar "eldfimt" efni brennur. Eldurinn er heitur vegna þess að við brunann losnar orka sem að hluta til er varmaorka. Þessu er lýst ágætlega í svari við spurningunni Hvers vegna er eldur heitur og ís kaldur? en þar segir:
Eldur kviknar þegar súrefni eða ildi ...
Bjór er samnefnari fyrir alla gerjaða, áfenga drykki gerða úr möltuðu korni og humlum. Bjór má gróft séð skipta í tvo flokka, lager og öl (e. ale). Munurinn ræðst af gerinu sem er notað en bruggaðferðirnar eru þær sömu, það er hvernig sykrunum er náð úr korninu og humlum bætt í og svo framvegis.
Í lagerbjór er...
Samkvæmt skilningi jarðfræðinnar er Ísland svonefndur heitur reitur. Slíkir reitir myndast þar sem möttulstrókar rísa úr iðrum jarðar, sumir þeirra ná allt niður að mörkum jarðkjarna á 2.900 km dýpi.
Undir Íslandi er möttulstrókur sem er um 200 km í þvermál og nær líklega alveg niður að mörkum möttuls og kjarna...
Gosbelti eru einfaldlega þau svæði á jörðinni þar sem eldgos eru tíð. Langflestar virkar eldstöðvar á jörðinni eru á flekamörkum, en svo nefnast skil milli fleka á yfirborði jarðskorpunnar. Flekmörk eru ýmist á þurru landi eða hafsbotni. Gosbeltin sjást vel á myndinni hér fyrir neðan sem fengin er úr bókinni Af hv...
Jörðin myndaðist að öllum líkindum fyrir 4600 milljón árum. Fljótlega skildist hún sundur í kjarna sem er að mestu úr járni og nikkel að talið er, og möttul, sem er úr ýmsum samböndum járns, kísils, áls, magnesíns og fleiri frumefna við súrefni.
Vegna varmamyndunar í þessu efni af völdum geislavirkni, efna- og...
Upphafið var sennilega um 1940, en þá tók fólk upp á því að blanda malt með gosdrykkjum til að drýgja það, því að maltið var mjög dýr drykkur. Egils appelsín var ekki til á þessum tíma, að minnsta kosti ekki í núverandi mynd, en ýmsir aðrir drykkir voru notaðir. Þetta virðist hafa verið nokkuð algengt.
Þegar Eg...
Spurninin í fullri lengd hljóðaði svona:
Hvaðan er "drykklöng stund" upprunnin og hversu löng er raunverulega drykklöng stund?
Orðið drykklangur í drykklöng stund, drykklangur tími er samsett úr drykkur og lýsingarorðinu langur og segir í raun ekkert hvernig orðið er hugsað og hver tímalengdin er. Elstu he...
Langflestar virkar eldstöðvar á jörðinni eru á flekamörkum en eldvirkni gætir einnig utan flekamótanna og þá helst á heitum reitum. Hin mikla eldvirkni á Íslandi skýrist að miklu leyti af því að landið er bæði á flekamörkum og á heitum reit.
Ármann Höskuldsson útskýrir þetta ágætlega í svari við spurningunni A...
Stutta svarið við spurningunni er að eldgos verða ekki aðeins á flekaskilum heldur einnig á flekamótum og á svonefndum heitum reitum sem geta verið fjarri flekamörkum. Hugtakið flekamörk er notað um svæði þar sem flekar mætast. Flekaskil eru þar sem flekar færast hvor frá öðrum og ný bergkvika kemur upp en flekam...
Í Gylfaginningu segir: Körmt og Örmt
og Kerlaugar tvær,
þær skal Þór vaða
dag hvern
er hann dæma fer
að aski Yggdrasils,
því að Ásbrú
brenn öll loga,
heilug vötn hlóa.
Helst er giskað á að hlóa þýði að eitthvað sjóði eða sé heitt en ‛vötn hlóa’ kemur fyrir ...
Réttari væri spurningin tvíþætt: „Er Ísland heitur reitur?“ og „Hvað veldur því að Ísland er heitur reitur?“
Heitir reitir nefnast staðir á jörðinni sem einkennast í fyrsta lagi af mikilli eldvirkni samanborið við svæðin í kring og í öðru lagi af því að þeir rísa hátt yfir umhverfið. Þannig verður ekki um það dei...
Glúten er prótín sem er að finna í mörgum korntegundum, aðallega hveiti en líka í byggi, spelti, höfrum og rúgi. Glútenlaus bjór er gerður úr möltuðum (spíruðum) korntegundum sem ekki innihalda glúten og þá aðallega dúrru (e. sorghum) og hirsi (e. millet). Að öðru leyti er bruggferlið eins eða sambærilegt og þegar...
Í heild hljóðaði spurningin svona:Hvaða tá er átt við þegar menn fá sér í tána? Hvaðan kemur þetta orðatiltæki?
Að fá sér í tána er ungt orðatiltæki og þekkist fyrst eftir 2000 samkvæmt þeim dæmum sem ég hef fundið. Algengara og eldra er orðasambandið að fá sér í fótinn, fá sér í annan fótinn, fá sér í betri fó...
Sennilegt er að einhvern tíma í árdaga hafi jörðin verið meira eða minna bráðin. En snemma myndaðist fast skurn á hinum glóandi hnetti vegna varmageislunar frá yfirborði. Að öðru jöfnu hefði jörðin átt að kólna smám saman og jarðskorpan að þykkna, og á 19. öld reiknaði eðlisfræðingurinn Kelvin lávarður út að 40 ti...
Hér getur þú sent okkur nýjar spurningar um vísindaleg efni.
Hafðu spurninguna stutta og hnitmiðaða og sendu aðeins eina í einu. Einlægar og vandaðar spurningar
um mikilvæg efni eru líklegastar til að kalla fram vönduð og greið svör. Ekki er víst að tími vinnist til að
svara öllum spurningum.
Persónulegar upplýsingar um spyrjendur eru eingöngu notaðar í starfsemi vefsins, til dæmis til að
svör verði við hæfi spyrjenda. Spurningum er ekki sinnt ef spyrjandi villir á sér heimildir eða segir ekki
nægileg deili á sér.
Spurningum sem eru ekki á verksviði vefsins er eytt.
Að öðru leyti er hægt að spyrja Vísindavefinn um allt milli himins og jarðar!